Skip to product information
1 af 30

Maxbone

GO! With Ease handsfree taumur

GO! With Ease handsfree taumur

Almennt verð 8.290 kr
Almennt verð 8.290 kr Tilboðsverð 8.290 kr
Á tilboði Uppselt
Litur: Ljósgrár

Þægilegur og stílhreinn taumur sem hægt er að nota á þrjá vegu.

Taumurinn er hluti af GO! With ease línunni frá Maxbone sem er stílhrein, falleg og litrík. Línan inniheldur beisli, tauma, ólar og töskur í stíl og er fullkomin í útiveruna með hundinn.

Kemur einnig í "mini" útgáfu sem hentar hundum að 10 kg. 

Vörulýsing

Taumurinn með 3 fyrir 1 eiginleika sem gerir hann frábrugðinn venjulegum taumum, tauminn er hægt að nota á þrjá mismunandi vegu. Það er hægt að bera tauminn um mitti, öxl eða nota sem venjulegan taum. Hann er stillanlegur fyrir mitti og öxl og einnig er hægt að stilla lengd taumsins sjálfs svo hægt er að stjórna fjarlægð hundsins. Því er hægt að stilla tauminn eins og hentar og er hann ótrúlega þægilegur í notkun.

Klemmur á báðum endum taumsins með skrúfufestingu. Hægt að hengja t.d. tösku fyrir kúkapoka eða samanbrjótanlegu ferðaskálina á tauminn. En við mælum sérstaklega með GO! With Ease tösku til að hengja á tauminn, en taskan er skemmtileg lausn til þess að geyma mikilvæga aukahluti í göngutúrnum. 

Taumurinn er fallegur, stílhreinn og er hönnunin á honum einstök.

Ætlað fyrir hunda að um 30 kg. (Ath. taumurinn kemur einnig í "mini" útgáfu sem hentar minni hundum að 10 kg).


Umhirða

Handþvottur. Má nota milda sápu.

Mælum gegn því að setja tauminn í þvottavél þar sem klemmurnar á taumnum eru þungar og fara ekki vel í þvottavél.

Efni

Úr mjúku og sterku vefbandi.

Stærðartafla

Mittis - og axlarstykki: 74 - 135 cm.

Taumur notaður með mittis - /axlarstykki : 105 - 151 cm. 

Taumur notaður sem venjulegur taumur: 82 - 127 cm. 

Breidd taums: 2,5 cm 

Skoða upplýsingar nánar