Mini GO! With Ease handsfree taumur
Mini GO! With Ease handsfree taumur
Mini taumurinn er mini útgáfa af GO! With Ease handsfree taumnum, mini taumurinn er minni og fíngerðari að öllu leyti en hefur sömu eiginleika. Taumurinn er fallegur, stílhreinn og er hönnunin á honum einstök.
Taumurinn er hluti af GO! With ease línunni frá Maxbone sem er stílhrein, falleg og litrík. Línan inniheldur beisli, tauma, ólar og töskur í stíl og er fullkomin í útiveruna með hundinn.
Vörulýsing
Vörulýsing
Taumurinn með 3 fyrir 1 eiginleika sem gerir hann frábrugðinn venjulegum taumum. Tauminn er hægt að nota á þrjá mismunandi vegu. Það er hægt að bera tauminn um mitti, öxl eða nota sem venjulegan taum. Hann er stillanlegur fyrir mitti og öxl og einnig er hægt að stilla lengd taumsins sjálfs svo hægt er að stjórna fjarlægð hundsins. Því er hægt að stilla tauminn eins og hentar og er hann ótrúlega þægilegur í notkun.
Klemmur á báðum endum taumsins með skrúfufestingu. Hægt að hengja t.d. tösku fyrir kúkapoka eða samanbrjótanlegu ferðaskálina á tauminn. Við mælum sérstaklega með GO! With Ease tösku til að hengja á tauminn, en taskan er skemmtileg lausn til þess að geyma mikilvæga aukahluti í göngutúrnum.
Fyrir hunda að 10 kg. Ath. taumurinn kemur einnig í stærri stærð sem hentar stærri hundum.
Umhirða
Umhirða
Handþvottur. Má nota milda sápu.
Mælum gegn því að setja tauminn í þvottavél þar sem klemmurnar á taumnum eru þungar og fara ekki vel í þvottavél.
Efni
Efni
Úr mjúku og sterku vefbandi.
Stærðartafla
Stærðartafla
Mittis - og axlarstykki: 74 - 135 cm.
Taumur notaður með mittis - og axlarstykki : 105 - 151 cm.
Taumur notaður sem venjulegur taumur: 82 - 127 cm.
Breidd taums: 1,20 cm.